Hvaða stærð er á dekkjunum þínum?
Ný og notuð dekk, felgur og aukahlutir á allar gerðir bíla – og fullbúið dekkjaverkstæði í Dalshrauni 16, Hafnarfirði.
Áttu ekki pantaðan tíma?
Þú getur alltaf komið í röðina hjá okkur og beðið eftir þjónustu.
Nýkomið á lager
Notuð dekk eru skráð með mynsturdýpt, svo þú sérð hvað þú færð áður en þú kemur.












Dekk, felgur og aukahlutir
Stök dekk, dekkjapar eða öll fjögur – álfelgur og stálfelgur á allar gerðir bíla – og felgurær, boltar og miðjur í miklu úrvali.
Fullbúið dekkjaverkstæði
Dekkjasalan rekur fullbúið dekkjaverkstæði og dekkjahótel, duftlakkar felgur og sér um viðgerðir á felgum.

Umfelgun
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling á fjórum dekkjum.

Dekkjahótel
Við geymum dekkin milli tímabila – líka dekk á felgum.

Dufthúðun á felgum
Sandblástur og duftlökkun, með eða án umfelgunar og lánsdekkja.

Felguviðgerðir
Felgurétting á ál- og stálfelgum, suða í álfelgur og felguþrif.

Negling og míkróskurður
Negling, borun og plokkun nagla – og míkróskurður fyrir jeppadekk.

Demantsskurður
Sandblástur, duftlökkun og demantsskurður á framhlið felgunnar.
Dekkin í bílskúrnum eru verðmæti
Í umboðssölu Dekkjasölunnar seljum við notuð dekk og felgur fyrir fasta viðskiptavini – allt á einum stað, með nákvæmri sölulýsingu.
- Þú kemur með dekkin og gerir umboðssölusamning.
- Við auglýsum þau á vefnum og höfum til sýnis í allt að 8 vikur.
- Söluandvirðið, að frádregnum umboðslaunum og vsk., fer inn á reikninginn þinn 10 virkum dögum eftir sölu.
