Fara í efni
Forsíða/Dekkjastærðir

Má setja aðra stærð undir?

Venjulega er hægt að nota nokkrar stærðir af dekkjum á bílinn. Berðu saman núverandi stærð og nýja – í réttum hlutföllum.

Núverandi stærð – 195/65 R15
Ný stærð – 205/55 R16

Hæð dekks er reiknuð svona: breidd × hæðarhlutfall gefur hæð hliðarinnar, tvisvar sinnum (uppi og niðri), og felgan bætist við (tommur × 2,54 cm).

Á sumum bílum er ekki ráðlagt að hreyfa mikið við stærðum – t.d. á nýjum bílum með fullkomnar tölvustillingar. Hafðu samband ef þú ert í vafa.

BreiddHlið (í réttum hlutföllum)
Hæð núverandi63,5 cm
Hæð nýrrar stærðar63,2 cm
Mismunur−0,3 cm (−0,4%)
Hliðarhæð126,8 → 112,8 mm
Breidd195 → 205 mm
Hraðamælir sýnir 100 – raunhraði99,6 km/klst

Dekkjastærðir – leiðbeiningar

Algengt er að bíll sé ekki á þeirri stærð sem gefin er upp í skráningarskírteini. Í flestum tilfellum er búið að stækka dekk frá upprunalegri stærð – t.d. fyrir betri aksturseiginleika, sérstaklega stærri belg í vetrarakstri, eða af því að settar hafa verið aðrar felgur undir bílinn. Belgmeiri dekk verja líka felgur mun betur en þegar prófíllinn er lár.

Sumir eldri bílar eru með slappari fjöðrunarbúnað og þá munar um hvern sentimetra sem bíllinn hækkar frá götunni. Hæð dekkja sem hægt er að setja undir takmarkast af nálægð hjólskálar (innra brettis) og í sumum tilfellum demparafestingum.

Dæmi: 195/65 R15

Dekkið er 19,5 cm á breidd og hæðin frá felgu upp á bana er 65% af því, eða 12,675 cm. Tvisvar sinnum (uppi og niðri) gerir það 25,35 cm. Felgan er 15″ × 2,54 = 38,1 cm. Samtals 63,45 cm, eða 24,98″.

Flestir bílar taka að minnsta kosti einu prófílnúmeri stærri dekk en gefin eru upp – bíll sem gefinn er upp með 195/60 R15 tekur líklega 195/65 R15. Þegar fólksbíll á 195/65 R15 er settur á 16″ felgur er algengt að nota 205/55 R16; hæðarmunurinn er aðeins 0,3 cm. Á 17″ felgum er 225/45 R17 algeng stærð, sem er sama hæð.

Loftþrýstingur

Upplýsingar um réttan loftþrýsting má oftast finna í dyrafalsi bílstjórahurðar eða inni í bensínloki.

Þumalputtareglan er að í venjulegum fólksbíladekkjum, jepplingum og jeppum er loftþrýstingurinn á bilinu 28–32 pund. Í low profile dekkjum er ráðlegt að setja 36–40 pund.

Eyða stærri dekk meira?

Eitthvað er til í því, en taka þarf ummálsbreytinguna með í samanburðinn: á minni dekkjum er bíllinn fyrr að sýna 100 km akstur en á stærri dekkjum.

Allar frekari upplýsingar veitum við í Dalshrauni 16 eða í síma 587 3757.