Fara í efni
Forsíða/Þjónusta og verð

Þjónusta og verðskrá

Dekkjasalan rekur hjólbarða- og felgusölu, fullbúið dekkjaverkstæði og dekkjahótel – og duftlakkar og gerir við felgur.

Hvað kostar dekkjaskiptin?

Veldu bílinn og felgustærðina – verðið kemur beint úr verðskránni.

Bíll
Felgustærð
Samtals16.000 kr.

Samkvæmt verðskrá Dekkjasölunnar. Dekkjaviðgerðir og annað er utan þessa.

Bóka tíma

Það sem við gerum

Einkunnarorð Dekkjasölunnar eru: Við leysum það! Við sérhæfum okkur í sölu og þjónustu á flestu sem tengist dekkjum, felgum og hjólabúnaði bílsins.

Bóka tíma – eða komdu í röðina og bíddu eftir þjónustu.

Dekk og felgur

Hjólbarða- og felgusala ásamt sölu á fylgihlutum, t.d. rær, boltar, miðjulok, miðjuhringir, loftþrýstiskynjarar og spacer-ar.

Dekkjaverkstæði

Fullbúið dekkjaverkstæði: umfelgun, víxlun, ballansering, dekkjaviðgerðir, negling og míkróskurður.

Dekkjahótel

Við geymum dekkin milli tímabila – líka heila ganga á felgum í gámageymslu.

Felgur

Duftlökkun og sandblástur á felgum, felgurétting, suða í álfelgur og demantsskurður.

Þjónustubíll

Smá aðstoð á staðnum fyrir fast verð.

Landsbyggðin

Nákvæm sölulýsing á vefnum svo fólk getur treyst því að versla í gegnum síðuna – við komum vörunni á flutningsaðila.

Verðskrá

Öll verð eru í krónum með virðisaukaskatti eins og þau birtast í verðskrá Dekkjasölunnar.

Verð miðast við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á fjórum dekkjum.

Fólksbílar / jepplingar til og með 15″14.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 16″16.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 17″18.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 18″20.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 19″24.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 20″26.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 21″28.000 kr.
Fólksbílar / jepplingar 22″30.000 kr.
Jeppar 29″ – 32″26.000 kr.
Jeppar 33″ – 35″29.000 kr.
Lítill sendibíll20.000 kr.
Stór sendibíll23.000 kr.

Dufthúðun á felgum

Felgurnar eru sandblásnar og duftlakkaðar. Í pakkanum fylgir umfelgun – og þú færð lánsdekk og felgur á meðan.

Felgustærð
Pakki
Breidd felgu
Duftlökkun og sandblástur – 18″102.000 kr.
Fjórar felgur102.000 kr.

Einnig í boði: að brenna duft/epoxýhúð af 20–22″ felgum (24.000 kr.) og sandblástur, duftlökkun og demantsskurður (180.000 kr.).

Senda fyrirspurn
Þjónustubíll Dekkjasölunnar

Þjónustubíll – fast verð

Þarftu smá aðstoð? Þjónustubíllinn kostar 15.000 kr. á föstu verði. Hringdu í 587 3757 og við finnum út úr því saman.

Hringja í 587 3757