Við leysum það!
Einkunnarorð Dekkjasölunnar. Við sérhæfum okkur í sölu og þjónustu á flestu sem tengist dekkjum, felgum og hjólabúnaði bílsins.
Dekkjasalan
Dekkjasalan ehf. rekur hjólbarða- og felgusölu ásamt sölu á fylgihlutum, t.d. rær, boltar, miðjulok, miðjuhringir, loftþrýstiskynjarar og spacer-ar. Við duftlökkum felgur og sjáum um viðgerðir á felgum, rekum fullbúið dekkjaverkstæði og erum með dekkjahótel.
Ætlun okkar er að veita landsbyggðinni fyrirtaks þjónustu, meðal annars með nákvæmri sölulýsingu á vörum okkar á vefnum, svo fólk geti treyst því að versla í gegnum síðuna.
Við hjá Dekkjasölunni erum að skapa okkur vinnu og ætlum að veita góða þjónustu, brosa og vera hressir – þannig að héðan fara allir út í góðu skapi.

Fyrirtækið
Dekkjasalan ehf.
Dalshrauni 16, 220 Hafnarfirði
Kt. 650406-2490
dekkjasalan@dekkjasalan.is
Opnunartími
Virkir dagar: 08:00 – 17:00
Laugardagar: 09:00 – 13:00
Sunnudagar: Lokað
Rauðir dagar: Lokað
Starfsleyfi
Rekstur hjólbarðaverkstæðis Dekkjasölunnar er starfsleyfisskyldur samkvæmt gildandi reglugerðum.
Vörur og verð
Á vefnum eru skráðar vörur sem eru til á lager eða hægt er að útvega. Verð og vöruúrval geta breyst án fyrirvara og vara getur verið uppseld áður en upplýsingar á síðunni hafa verið uppfærðar.
Dekkjasalan ehf. áskilur sér rétt til að hætta við sölu vegna rangra verðupplýsinga, tæknilegra mistaka, uppseldrar vöru eða annarra villna í upplýsingum og myndum. Við mælum með að viðskiptavinir staðfesti lagerstöðu, verð og upplýsingar áður en gengið er frá kaupum.
Sending
Þeir sem vilja kaupa eftir að hafa kynnt sér vöru á vefnum geta haft samband og við finnum í sameiningu leið til að koma vörunum til kaupanda. Við förum með vöruna til þess flutningsaðila á höfuðborgarsvæðinu sem kaupandi óskar eftir, honum að kostnaðarlausu. Kaupandi greiðir svo fyrir flutninginn þaðan.
Söluskilmálar
Eins og þeir birtast á reikningum viðskiptavina:
Réttur neytenda fer eftir ákvæðum laga nr. 48/2003 en um kaup annarra gilda lög nr. 50/2000.
*Umboðsvara – Viðskipti með lausafé frá einstaklingum (umboðssala) bera ekki virðisaukaskatt og er farið með samkvæmt 10. gr. a. laga nr. 50/1988. Dekkjasalan ehf. er ekki eigandi hins selda lausafjár og ábyrgist ekki eiginleika söluhlutar gagnvart kaupanda.
Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting ásamt herslu á felguróm/boltum reglulega, sérstaklega fyrst eftir umfelgun, innan tveggja daga eða 30–40 km. Ef ekki er hugað að þessu hefur það í för með sér aukna slysahættu og/eða hættu á skemmdum. Ábyrgð söluaðila nær ekki til tjóns sem hlýst af notkun gallalausra vara sem seldar eru í versluninni. Öll notkun er á ábyrgð kaupanda ásamt skemmdum sem af því hljótast.
Viðskiptafærður reikningur eða millifærslukrafa í banka stofnast sem krafa í heimabanka. Reikningurinn er rafrænt ytra frumgagn skv. reglugerð nr. 505/2013.